
Sólskin í Köben í dag og það er yndislegt að lifa! hehee...
Reyndar er lokaverkefnið mitt í fokki...en ég fer á fund seinna í dag og ég er rosalega bjartsýnn að hann takist vel! Fékk líka tilboð um annað verkefni í Aarhus í morgun! En byrja að tala við Kirsten Junge sem er eigilega svona mentor fyrir mig. Hún rekur frábæran skóla á Christianshavn sem heitir Space Creations! En ég sit heima núna og er að undirbúa mig, med GusGus á fullu blasti og er að drekka yndislega vont kaffi! Guð, hvað ég er jákvæður í dag! Verð að einhvernveginn að koma þessari orku út í alheiminn! HÉRNA ALHEIMUR.. TAKTU VIÐ ÞESSARI ORKU! (nei, ég var ekki að poppa sýru)..
Síðan er ég að fara á date med Oliver í kvöld (kannski er ég svona ánægður út af því, gæti það verið!!!) En kæru vinir (þið sem viljið að ég sé single) ég er ekki að fara inní nýtt samband.. þetta verður bara allt að koma í ljós! Bara rólegt date heima hjá honum á Island Brygge.. hygge með góðum mat og víni! Þið fáið að vita næstum allt sem gerðist á morgun!
Annað sem er í fréttum, þá er Frímann að koma til Köben í dag, gistir hjá mér um helgina og vonandi verður eitthvað trall! Kæmi ekki á óvart.. og þið sem eruð á Íslandi..munið Vetrarhátíðin er að byrja. Eva super pilot er að vinna í henni..Farið og njótið menningarinnar í höfuðborginni.
Síðan er ég að opna PayPal account þannig að ég geti reddað mér myndavél.. Elsku vinir hvernig væri að þið styrkuð fátækan námsmann í Kaupmannahöfn..svona eins og Íslendingar gerðu fyrir Jón Sigurðsson á sínum tíma! Þá lofa ég að koma heim eftir námið..hehehe.. og þá yrði þessi síða svo miklu skemmtilegri..
Nóg í bili..ELSKA YKKUR OG SAKNA YKKAR.. og endilega skrifið komment..