Velkomin!!!
Hæ
Ég heit Guðni Kristinsson og er 29 ára. Bý í Árósum í Danmörku. Þar er ég að læra að verða KaosPilot ( www.kaospilot.dk ). Kíkið á síðuna og lærið um skólann.
Ástæðan fyrir því að ég byrja þetta blogg er sú að í febrúar mun ég fara til Kúbu í þrjá mánuði að vinna að verkefni. Þegar ég verð þar mun ég halda út dagbók fyrir fjölskyldu og vini. Ef þú tilheyrir hvorugum hópnum ertu samt velkominn að kíkja hér á síðuna og senda mér athugasemdir.
Þessi blogg heimur er nýr fyrir mér. Hef reynt áður að byrja blogg en það hefur ekki gengið hingað til en í þetta skifti ætla ég að láta þetta ganga! Núna er ég staddur á Íslandi. Var að klára þessa önn í skólanum og verð hérna á Fróni til 8.jan. Er í process að leita mér af vinnu. Hefur ekki gengið hingað til... en ég er rétt að byrja!
Það kemur meira seinna..
Kveðja
Guðni