mánudagur, nóvember 14, 2005

Manudagur..aftur..

Jæja elskurnar mínar ( eins og Heiðar snyrtir myndi segja )! Þá er kominn mánudagur aftur! Guðni mættur á skrifstofnuna! Firsta á dagskrá að update bloggið! Eins og ég lofaði í síðustu viku þá ætla ég að vera duglegur að blogga! Þannig að þið vinir og vandamenn geti fylgst með uppátækjum mínum í stórborginni!
En snúum okkur að helgarskýrslunni!!!
Á föstudag fór ég snemma heim! Fannst eins og ég þurfti að gera þúsund hluti.. en það voru reyndar bara 2 en þegar maður er í London tekur allt frekar langan tíma! En ég ákvað að fara í klippingu! Eins og þið vitið þá er nú ekki mikið hár eftir en nokkur hár eru þó ennþá að vaxa og það þarfa að snyrta! Fann mjög góða stofu mjög nálægt heima! Ung ítölsk drottning á hana og hommahækjan hans vinnur þar líka ( auðvitað sem snyrtifræðingurinn.. kemur á óvar )! Síðan fór ég að þvo fötin mín! Búinn að finna þetta æðislega þvottahús! Alltaf þegar ég sit þar inni líður mér eins og karakter í Eastenders! Ein ensk konar vinnur þar frá 8 - 6 á hverjum degi og hún þekkir alla í hverfinu! Hún er búin að kynna mér fyrir gömlu ekkjunni sem datt fyrir 2 mánuðum, 20 ára tælenskri stúlku sem var að flytja til Englands og talar 3 orð í ensku.. yes, no og and! Við hliðina á er síðan Fish & Chips shop! Hef ekki prófað það ennþá! Verð að gera það í þessari viku!! Eftir East End reynslu mína varð ég að fara niður í Soho! Hitti Gerry...írskur strákur sem er skotinn í mér! En ég ekki í honum.. því það er annar maður í mínu lífi!!
Já....ég er ekki búinn að segja ykkur öllum frá honum.. Smáatriði seinna...
en ég og gerry djömmuðum til 6 á laugardagsmorgun.. barcode og pump at Fire! Þegar ég kom heim fann ég ekki fyrir löppunum á mér! Guð, var búinn að gleyma hvað það er gaman að dansa alla nóttina.. fékk að vita að ég væri good mover! ekki dancer.. mover!! Það er víst eitthvað annað.. alltaf að læra eitthvað nýtt..
Laugardagurinn var hræðilegur.. tókst þó að labba yfir götuna til að ná mér í kaffi! Veit að það er bannað að kaupa Starbucks.. en í þynnku er allt leyfilegt! EKKI!! Var búinn að lofa Jean ( franskur vinur minn ) að djamma með honum..en ég gat það ekki!!! Var því mjög góður strákur á laugardagskvöld!!!
Krakkar nú verð ég að fara að vinna.. skrifa meira seinna í dag...
SAKNA YKKAR ALLRA ROSALEGA MIKIÐ..
STÓRT KNÚS
GUÐNI

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Halló frændi! Vildi bara þakka fyrir fínu gjafirnar sem ég fékk á skírnardaginn minn. Vonandi hefur þú það gott í London. Mömmur mínar ætla að fylgjast með blogginu þínu svo það er eins gott að þú sért duglegur að uppfæra síðuna þína. Koss og knús frá okkur, Kári Christian og co

7:22 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home