Tafyla og tulipar...

Ný vika er runnin upp.. og ég á eftir að gera svo mikið! Núna verð ég að forgangsraða....
1. Verð að fara í þvottahúsið...á ekki eitt par af hreinum sokkum eftir!
2. Áður en ég fer í þvottahúsið verð ég að kaupa þvottaefni.
3. Verð að kaupa rakvélablöð
4. Verð að fara í Tesco og kaupa kodda! Sef án kodda núna!
5. Verð að fara í vax ekki seinna en á miðvikudag!
6. Verð að passa mataræðið..ég er farinn að fitna!
Þetta eru bara nokkrir hlutir sem ég verð að gera fyrir helgina... eins og þið sjáið þá hefur það allt með hreinlæti og ytri fegurð að gera! Enda erum við Reynir að fara á ógurlegt djamm um næstu helgi! Hlakka svo til..
En helgin leið mjög hratt.. vann töluvert en tókst samt að djamma aðeins! Fór út með Jean báða dagana! Ætluðum að fara að sjá SKIN á Popstarz en þegar við komum á KingsCross var biðröðin mjög löng.. og það var frost úti.. þannig við ákváðum að hlýja okkur á Chunkies... og síðan endaði gleðin á Fire! Þessi klúbbur er rosalegur! Það er ekki sála þarna inni sem er að éta pillur, snorka hvítt duft eða reykja eitthvað! Hundruðir manna og kvenna....allir í sínum eigin heimi! og biðröðin á klósettið er alltaf mjög löng! og alltaf 2-3 inní hverjum bás... en verð að segja að tónlistin er rosalega góð..og ég dansaði eins og brjálæðingur... og endaði síðan með hommahækju uppá arminn...
Já, Guðni var chick magnet um helgina! Ég segji ykkur það...ef ég hefði viljað þá hefði ég getað búið til barn um helgina!
En ég er hliðhollur mínu liði... fer ekki að skifta um lið út af einni hækju!...en hún var jú mjög sæt! Kannski ætti ég að hugsa um þetta, ég er með númerið hennar! Hvað finnst ykkur? Á ég að láta á þetta reyna?
Segið skoðun ykkar... Núna ætla ég að hætta, klára hérna í vinnunni og fara heima og þvo sokka!!
Kær kveðja frá kaldri London...

3 Comments:
Láta á þetta reyna, ekki spurning.
Nú er tækifærið stráksi til undaneldis. Smakkaðu á "gellunni", Gott að hún býr í UK því þá færðu bara króann til þín á sumrin hingað á klakann, hendir honum til sveitina til Boggu systir, afsakar það með því að öll börn á Íslandi fari í sveit á sumrin, það sé svo hollt.
Síðan fer barnið aftur út að hausti og er í stritinu hjá mömmu sinni allan veturinn:) Færð króann 3. hver jól, leikur góða pabbann og segist ekki vilja slíta þau burt frrá hvort öðru um hátíðarnar. Gott á kellu að vera að snúsa á nösinni, þetta ætti að kenna henni. Svo ferðu fram á sameiginlegt forræði til að sleppa við meðlögin. Gott að leika áhugasama pabbann strax frá byrjun, þær falla allar fyrir því. Svo þegar barnið fer að komast á krefjandi aldur, ca. 9-10 ára þá slítur þú öll tengsl (borgar meðlag) og trúðu mér, afkvæmið mun leita þig uppi þegar það kemst á miðjan aldur (vill leita forfeðra sinna) og þá tekur þú ástúðlega á móti með tárin í augunum, sakar kellinguna um svik og pretti og að hafa ekki leyft ykkur að hittast og volla...búinn að fá einvern til að sjá um þig í ellinni. Klikkar ekki!! Þekki fjölmörg dæmi
say no more!
Takk Hanna min...
Thu ert buin ad sannfaera mig..
Eg prufa thetta... hver veit nema ad Gudni verdi ordinn pabbi i agust a naesta ari!!!
Skrifa ummæli
<< Home