þriðjudagur, nóvember 15, 2005

3 dagar...


Hugsinn í Háskólanum í Havana...


Góðan dag elskurnar mínar..

Þriðjudagur og núna aðeins 3 dagar þangað til að Christian kemur til London! Ok, þið sem vitið það ekki.. þá er Guðni kominn með kærasta! Ok...mörg af ykkur töluðu um að ég gæti ekk verið single i meira en 2 mánuði en mér tókst að lifa af næstum 6 mánuði! Yes.. og síðan gerðist það! Ok, nú fáið þið kynninguna..
Hann heitir Christian.. eins og nýi frændi.. ( innilega til hamingju nýi frændi með fallega nafnið ), er aðeins eldri en ég 37 en lítur út eins og hunk! ( það er að segja 35 ára hunk )! en það er ekki aldurinn sem skiftir máli!hehehe.
Við byrjum að data rétt áður en ég kom til London. Í byrjun átti þetta bara að vera smá skemmtun! Ekkert meira, hann var að koma úr mjög löngu sambandi ( 10 ár og þeir standa nú í forræðisdeilum út af hundunum ) en ég held mér algjörlega fyrir utan það! Síðan gerðust hlutirnir bara..og þegar við vorum að segja bless þann 24.október.. þá var það miklu erfiðra en það átti að vera! Tárin streymdu og þegar ég horfði á eftir honum...fann ég fyrir svo miklum söknuði! og síðan þá höfum við verið í daglegu sambandi! og hann kemur á föstudag! Ég geri mér grein fyrir að það eru 100 hlutir sem koma í veg fyrir að þetta verði virkilega alvarlegt! 10 ára samband, ég í London, hann í Aarhus, og fullt af öðrum hlutum.... þá er einhver ró yfir mér þegar ég er með honum!
og núna lít ég út eins og :-)
En við tökum þessu mjög rólega. Ætlum að eyða nokkrum góðum dögum saman í London og síðan fer ég yfir til Aarhus þann 14.des og síðan á ég eftir að ákveða með jólin! Verð annaðhvort hérna eða í Danmörku! Mjög litlar líkur að ég komi til Íslands! en það á allt eftir að koma í ljós!
Nú ætla ég að snúa mér að vinnunni.. myndir koma seinna...
NJÓTIÐ DAGSINS
GUÐNI

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vó! Guðni! Hann er ELDRI en ég! Til hamingju.... knús og kreist!

11:06 f.h.  
Blogger GudniKaos said...

Linda min.. ekkert er eldra en thu!!

11:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey! Ég segi nú bara við þig það sama og ég sagði alltaf við bekkjasystur mína úr barnaskóla, hana
Zsa Zsa Gabor... You bitch!

12:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home