laugardagur, febrúar 18, 2006

Eurovison, exin..og golf...



LAUGARDAGURINN STÓRI ER RUNNINN UPP!! EUROVISION...THE BIG FINALE! Eins og þið vitið vinir mínir þá er ég ekki huge eurofan..en ég fylgist með eins og allir Íslendingar! Í kvöld verð ég hjá Svenna og við ætlum að fylgjast med keppninni á netinu! Það eru nokkrar ástæður fyrir því að mér finnst þessi keppni núna skemmtileg! Fyrst er það aðsjálsögðu hún Silvía Nótt.. Frábær leikur hjá stúlkunni og lagið er alveg ágætt...er nokk sama hvernig Íslandi gengur í Athenu, það er fyrir öllu að íslenska framlagið sé skemmtilegt og öðruvísi.. og það verður ekki tekið af henni Silvíu Nótt..
Hin ástæðan er sú að minn fyrrverandi er að taka þátt! Sá hann í undanúrslitunum og hann stóð sig rosalega vel. Frábært að heyra hvað Bjartmar hefur þroskast bæði í söng og útgeislun á sviðinu.. Vissi alltaf að hann yrði stjarna, og nú er draumur hans næstum að rætast.. Honum hefur alltaf langað at taka þátt í keppninni og vonandi gengur honum vel í kvöld. En ef ég á að setja mig í hlutverk Völvunar.. þá sé í spilunum að Silvía mali þetta!

En Bjartmar er ekki eina exid mitt sem ég mun sjá í dag! Var að kíkja á profilinn minn á Boyfriend og allt í einu fékk ég mail frá Sebastian! OK..hver er hann! Nú förum við 12 ár aftur... Guðni vann eitt sumar í Aarhus sem póstberi (Nordjob).. þar hitti ég ungan dreng frá (ég var aðeins 19) Sönderborg.. og við urðum kærastar þetta sumar! Síðan allt í einu fæ ég mail frá honum og hann vil ólmur hitta mig! Og ekki bara yfir kaffibolla heldur vill hann líka data!! Hvað á ég að gera? Finnst mjög fyndið að hitta svona gamalt fling aftur...og hann er ennþá mjög sætur..og orðinn hjúkka! Hvað er þetta með mig og heilbrigðisstéttir! Læknir, hjúkkur og sjúkraþjálfar.. kannski afþvi að 50% í DK vinna við þessi störf!

Var að koma heim núna og kveikti á sjónvarpinu..og horfði á Glitter (gat bara horft i 30 min.. var orðið illt í augunum)! Guð minn almáttugur, þessi kona getur ekki leikið fyrir 5 aura! Hef aldrei sé annan eins hrylling! Mariah Carey er það ömurlegasta sem hefur skriðið á þessari jörðu! Það gæti verið að hún syngi vel.. en allt annað er hryllingur! Því til stuðning er myndin hér að ofan! Er mögulegt að spila golf í hælum?
SKEMMTIÐ YKKUR VEL I KVÖLD...
KNUS
GUÐNI

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mæja karrí getur ekki heldur sungið!!
þvílíkt egóbúst að heyra aftur frá gömlu flingi!! Hann hefur eflaust aldrei komist yfir þig og er búin að hugsa stöðugt um þig. Ég myndi hitta hann aftur, allt svo auðvelt þekkist fyrir og svona:)

3:12 e.h.  
Blogger GudniKaos said...

Veit ekkert hvað ég á að gera! Hitt jú Oliver um helgina en það sakar ekkert að hitta Sebastian.. Hef ekki áhuga að eitthvað gerist..en bara gaman að sjá hann aftur.. og síðan er það Oliver! Langar miklu meira að sjá hvað gerist þar! Stelpur takk fyrir commentin.. og gaman að heyra frá ykkur..
Knús

5:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

I have been looking for sites like this for a long time. Thank you! » »

3:38 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home