
Maður er orðinn svo mikill buisness maður að þátttaka á Iðnþingi er ekkert tiltökumál! En var á því í dag og var einstaklega sáttur við erindi sem bankastjóri Lansbankans hélt. Sigurjón Þ. Árnason hélt erindi sem fjallaði um íslenskt atvinnulíf árið 2020!
Margt áhugavert sem kom fram hjá honum t.d. í sambandi við mikilvægi EES samningsins á sínum tíma! Hann gjörbreytti íslensku þjóðfélagii á svo margan hátt. Þessi samningur er stærðsti áhrifavaldur í atvinnulífi þjóðarinnar síðan togarútgerðin í upphafi 20.aldar! Og það leiðir mig til að hugsa um umræðuna um aðild að ESB! Einhvern veginn kemur það mér ekki á óvart að sama fólkið sem gólaði hæðst um hræðilegar afleiðingar EES samningsins góla núna enn hærra um aðild að ESB! Er það ekki ljóst að EES samningurinn hrynti af stað einu mesta hagsældar skeiði í sögu landsins! Hvaða röku mæla á móti því að ESB aðild myndi ekki gera það sama? Ein rök eru sú að hagvöxtur á Íslandi hafi verið hærri en í ESB löndunum! En ef kafað er dýpra í þær tölur kemur í ljós að nýju hagkerfin innan ESB (eins og Írland, Spánn og Grikkland) hafa notið svipaðs hagvaxtar eins og Íslendingar! En stóru löndin (Frakkland og Þýskaland) hafa dregið hagvöxt niður! Og alls ekki neitt athugavert við að gamal gróin viðskiptaveldi sem hafa byggt upp sinn iðnað og þjónustu í margar aldir hafi minni hagvöxt en spútnik ríkin Ísland og Írland!
Önnur rök eru varðandi yfirráð okkar yfir auðlindum okkar! Hver á þessar auðlindir í dag! Kvótakóngar á Akureyri og Grindavík! Ekki íslenska þjóðin!!!
Ég held að íslenskir stjórnmálamenn (sérstaklega Sjálfstæðismenn og Vinstri Grænir) þurfi að fara gera sér grein fyrir að Ísland er ekki eyland í alþjóðakerfinu! Við erum háð viðskiftum og samskiptum við önnur ríki! Íslenskt þjóðfélag byggir á evrópskum gildum og okkar helstu viðskiptalönd eru innan ESB! Þessi torfbæjar stjórnmál hafa runnið sitt skeið á enda! Ég sem ungur framagjarn einstaklingur á miklu meira sameiginlegt með ungu fólki í Madrud heldur en grásleppusjómanni frá Akranesi! Mínir hagsmunir liggja í að íslenskt þjóðfélag sé opið og taki virkann þátt í alþjóðasamskiptum!
Svona til að enda þenna pistill þá man ég 1995 þegar ég gekk til liðs við Alþýðuflokkinn sáluga! Það var nær eingöngu vegna þess að hann studdi ESB aðild! Flokkurinn var svo langt á undan sinni samtíð að það er ekki einu sinni fyndið! En núna 12 árum seinna er ég ennþá sömu skoðunnar.. og sem betur fer get ég stutt Samfylkinguna í dag sem hefur ESB aðild á dagskrá!
Jæja... þetta er nóg í bili. Er að fara á eftir að djamma með Maríu og Frímanni! Er að fagna mjög mikilvægum áfanga í vinnunni en ég segi meira frá því seinna.
Kveðja
Guðni